Þú ert komin hingað því þig langar að taka frá tíma fyrir þig í hverri viku. Haust kortið hvetur þig áfram, þú mætir betur og nærð þannig enn betri árangri. Þú verður glaðari, þú sefur betur, þú verður í þínu besta formi og þú nýtur þess að fara í ræktina af því þú ert ekkert að fara í ræktina, þú ert að mæta í Dans og Jóga Hjartastöðina 💕
Með mánaðarkorti kemstu af með góðum krafti án þess að skuldbinda þig of lengi. Þegar kortið er runnið út þá er upplagt að skoða aðra möguleika og líklega muntu að koma í Áskrift er málið.
Zumba partý eru haldin í Dans og jóga Hjartastöðinni 5 sinnum í viku. Á mánudags- og miðvikudagskvöldum, í hádeginu á þriðjudögum og föstudögum og á laugardagsmorgnum kl. 11.
Jóga tímarnir eru fjölbreyttir og fjölmargir. Morgunjóga, Rólegt jóga, Jóga Nidra og Hatha jóga. Þú finnur þinn tíma og stað fyrir þína dýnu
STRONG er kraftmikil líkmasrækt þar sem gerðar eru æfingar með eigin líkamsþyngd í takt við tónlist. Frábær leið til að efla snerpu, sprenikraft, þol og styrk um leið og STRONG er frábær spennulosun og gleðisprengja.
Bandvefslosun snýst í stuttu máli um sjálfsnudd með mörgum tegundum af boltum og teygjum. Unnið er markvisst með bæði bandvefskerfi líkamans og önnur kerfi af því að bandvefurinn tengir allt saman í líkamanum. Hér má lesa og heyra viðtal við Heklu Guðmundsdóttur sem kennir Bandvefslosun í Hjartastöðinni.
Línudans er frábær skemmtun og engin þörf á dansfélaga. Opnu tímarnir eru meira fyrir þá sem hafa lokið byrjendanámskeiðum sem við mælum að allir taki fyrst.