Allir sem hafa farið eru sammála!
Albir er frábær, Zumba tímarnir æði, jóga upplifunin yndisleg og kennararnir meiriháttar.
Vinir, hjón, vinkonur, mæðgur, systur, frænkur og fjölskyldur skella sér saman í þessa ferð. Allir koma endurnærðir heim.
Skelltu þér með !
„Þetta er búið að vera yndisleg ferð. Höfum aldrei farið í Zumba og jóga áður en ákváðum að skella okkur samt og sjáum sko ekki eftir því. Þvílík skemmtun, yndislegt fólk með okkur í ferðinni og ekki skemmir að Jói og Thea eru með. Takk kærlega fyrir okkur :-)“
Ferðin var ákveðin og keypt á 15 mínútum . Að vera með mömmu sinni og systrum að rækta líkama og sál er algjörlega ómetanlegt og að gera það með Jóa og Theu á Albir er líklega best í heimi.
Zumba partý
Í loftkældum sölum hótelsins og einu sinni við strandgötuna í Albir.
Jóga við ströndina
Þrjá morgna, fyrir morgunmat er farið niður að strönd og í jóga tíma með Theu. Einstök upplifun í dagsbyrjun.
Gönguferðir og partý
Gengið um Albir og upp að fallegum vita í fjallshlíðinni fyrir ofan bæinn. Lokakvöldið endar með ógleymalegu partýi og samverustund á flottum veitingastað.