Af hverju að velja línudans?

Línudans er frábær leið til að hreyfa sig, njóta tónlistar og kynnast skemmtilegu fólki. Þú þarft ekki dansfélaga og getur byrjað á þínum hraða. Kennslan hjá Jóa er skemmtileg, skýr og uppbyggileg og hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa meiri reynslu.

Með línudansi bætir þú jafnvægi, samhæfingu og líkamlega vellíðan á meðan þú nýtur þess að læra ný spor og dansa í góðum félagsskap. Fæstir mæta bara fyrir hreyfinguna heldur fyrir gleðina, stemninguna og samfélagið sem myndast í tímunum.

Línudans í Hafnarfirði með Jóa sameinar gleði, hreyfingu og frábæran félagsskap.

Tímar fyrir alla

Hjá Jóa geta allir fundið tíma við hæfi, hvort sem þeir eru að stíga sín fyrstu spor eða hafa dansað lengi.

Kennt er í sal Karlakórsins Þrasta, Flatahrauni 21, Hafnarfirði.

Byrjendur
Þriðjudagar kl. 20:30

Framhald 1
Þriðjudagar kl. 19:30

Framhald 2, 3 og 4
Þriðjudagar kl. 17:10–19:20

Línudanskennsla með Jóa á sér langa sögu

Jóhann Örn Ólafsson stundaði samkvæmisdans sem barn og unglingur. Sýndi og keppti og varð margfaldur Íslandsmeistari. Hann varð útskrifaðist sem danskennari í Englandi og á Íslandi vorið 1993 og stofnaði sinn eigin dansskóla um haustið sama ár. Hann lærði sín fyrstu línudansspor hjá bandaríska varnarliðinu í Keflavík árið 1994 og hélt fyrsta línudansnámskeiðið hérlendis sumarið 1995.

Jói hefur því kennt línudans í yfir þrjá áratugi og hjálpað fjölda fólks að stíga sín fyrstu spor. Kennslan einkennist af skýrri uppbyggingu, góðri stemningu og gleðinni sem fylgir því að dansa saman.

Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn finnur þú tíma við hæfi og hlýlegt umhverfi þar sem gaman er að læra og dansa.

Skráning í línudans

Komdu á línudansnámskeið í Hafnarfirði og upplifðu gleði, hreyfingu og frábæran félagsskap.

Veldu námskeið við hæfi og skráðu þig í dag.