Salir til leigu

Vantar þig góðan sal til að halda t.d. námskeið, fyrirlestur, danstíma eða jógastund?

Við leitum að öflugum einstaklingi, fyrirtæki eða félagi til að nýta með okkur glæsilega aðstöðu í Dans og Jóga Hjartastöðinni, Skútuvogi 13A. 

Frá því snemma á morgnanna og fram að síðdegi alla virka daga og um helgar eigum við lausa fjölmarga tíma í báðum sölunum okkar. Annar þeirra er 170 fermetra stór með parketgólfi, hinn er 100 fermetrar að stærð með dúk á gólfinu. Í báðum sölum eru öflug hljómflutningstæki og við eigum borð og stóla. 

Líkamsrækt, jóga, dans, söngur, leiklist eða nánast hvað sem er. 

Hafðu samband og kíktu á okkur.

HEIMILISFANG

Skútuvogur 13A
108 Reykjavík

NETFANG

joi@dansogjoga.is