Brúðkaupsdansinn

Það eru alltaf skemmtileg brúðkaup þar sem dans kemur við sögu

  • Þegar brúðhjónin dansa brúðarvals eða einhvern annan fallegan dans fyrir framan brúðkaupsgestina. Sum hjón vanga við uppáhaldslagið sitt á meðan önnur læra og æfa sýningaratriði sem slær í gegn
  • Þegar slegið er upp dansleik í veislunni og allir gestir skella sér á dansgólfið ásamt brúðhjónunum
  • Þegar gestir í brúðkaupinu gera „flashmob“ atriði með flottum danssporum og koma brúðhjónunum og hinum gestunum fullkomlega á óvart
  • Þegar brúðguminn býður móður sinni eða tengdamóður upp í dans
  • Þegar faðir brúðarinnar dansar við dóttur sína

Allar svona uppákomur eiga það sameiginlegt að vera með því eftirminnilegasta frá góðri veislu á brúðkaupsdaginn.

Verðandi brúðhjón geta drifið sig á byrjendanámskeið í samkvæmisdönsum, fjögur kvöld á fjórum vikum og lært grunnsporin í vals, cha cha, jive og foxtrot. Svo ættu öll verðandi brúðhjón að taka að minnsta kosti einn einkatíma til að undirbúa mikilvæga stund í veislunni. 

Frábærir kennarar taka á móti verðandi brúðhjónum

Jói dans - Jóhann Örn Ólafsson

Jói
eigandi / danskennari

Jóhann Örn Ólafsson hefur áratuga reynslu af danskennslu, veislustjórn, viðburðastjórnun og uppsetningu tónleika og danssýninga. Jóhann Örn veit nákvæmlega hvað á gera til að mæta óskum verðandi brúðhjóna eða gesta á leið í brúðkaup

Denise
Samkvæmisdans

Denise Yagi hefur áralanga reynslu af dansi og danskennslu. Hún getur kennt byrjendum einföldustu sporin og einnig getur hún sett saman flóknari dansa fyrir þá sem ætla að setja upp alvöru show.

 

Ísak
samkvæmisdans

Ísak er reynslumikill dansari og danskennari. Hann getur kennt sett saman flotta danssýningu rétt eins og að geta kennt einföldustu byrjendasporin

Öll geta þau kennt öllum að dansa þannig að eftir tímana eða námskeiðið getur fólk farið óhrætt út á dansgólfið í brúðkaupinu og slegið í gegn.

Það er því alveg frábært fyrir alla sem eru að undirbúa brúðkaup á næstunni að hafa samband við Dans og Jóga Hjartastöðina og fá alla þá aðstoð sem þarf til að gera ógleymanlegt atriði í brúðkaupinu. Meðal þess sem boðið er upp á eru:

  • Einkatímar fyrir brúðhjónin hvort sem þau vilja dansa einn fallegan og einaldan dans eða setja upp alvöru dans show
  • Hóptímar fyrir brúðhjónin og þeirra nánasta fólk, foreldra, systkini og vini til að undirbúa sig fyrir dansinn í veislunni
  • Hóptímar fyrir gesti sem vilja skemmta brúðhjónunum og öðrum gestum með óvæntum dansi sem slær í gegn
  • Danskennara til að mæta í veisluna og fá alla gesti út á gólf í hvers konar partý dansa sem fólk óskar sér

Hafið samband og við hjálpumst að með góðar hugmyndir, finnum tíma og verð og tryggjum að dansinn duni í brúðkaupinu sem í vændum er.

Ég hafði heyrt af vel heppnuðu ,,flash-mob“ dansatriði sem Jói hafði sett saman fyrir brúðkaup. Við höfðum þess vegna samband við hann og fengum hann til að hjálpa okkur með óvænt dansatriði í brúðkaupi frænda míns. Hópur gesta í brúðkaupinu tók nokkrar æfingar og atriðið sló í gegn. Þetta reyndist frábært atriði til að skipta um gír í veislunni – úr borðhaldi í partý.

Benedkit / Brúðkaupsgetur 2018

Þegar DJ-inn byrjaði skyndilega að spila tónlist hærra og ein frænkan stóð upp og byrjaði að dansa vissum við ekki hvað kæmi í kjölfarið! Skyndilega var stór hluti af veislugestum staðinn upp og byrjaður að dansa og útkoman eitt það eftirminnilegasta sem við höfum upplifað. Við horfum ennþá í dag reglulega á upptökurnar af þessu frábæra, ógleymanlega atriði og gestir veislunnar minnast þess einnig nú nokkrum árum síðar! (Brúðkaupsgestir undirbjuggu atriðið í Dans & Jóga Hjartastöðinni)

Hjörtur & Ásdís / Giftu sig 2018

Við fórum í danstíma til Jóa fyrir brúðkaupið okkar þar sem við fengum frábæra útfærslu og skemmtilega kennslu. Við negldum þetta enda er Jói fagmaður fram í fingurgóma með yndislega nærveru.

Anna & Gústaf / Giftu sig 2018

„Við mæl­um inni­lega með því að læra að dansa. Við mæl­um með því að hafa sam­band við Jóa hjá Dans og jóga og fara á nám­skeið hjá þeim og/​eða í einka­tíma. Síðan mæl­um við með því að fá hann til þess að taka nokk­ur zumba-spor í veisl­unni. Það skap­ar frá­bæra stemn­ingu!

Áslaug og Sigurður / Giftu sig 2019